Flýtilyklar
Velkomin(n)
Gásir við Eyjafjörð eru einstakur staður 11 km norðan við Akureyri. Gásakaupstaður, verslunarstaður frá miðöldum eru friðlýstar fornleifar í umsjón Fornleifaverndar ríkisins. Á staðnum má sjá einstakar rústir þessa forna kaupstaðar sem var við lýði allt frá 12.öld og jafnvel allt að því að verslun hófst á Akureyri á 16. öld. Hér var um sumarverslunarstað að ræða eins og tíðkaðist í þá daga.
Nýjustu fréttir
-
Miðaldadagar 2013
miðvikudagur 10.okt.12 14:34Miðaldadagar verða haldnir á Gásum um miðjan júlí, nánar tiltekið 19. - 21. júlí.
Ýmislegt nýstárlegt verður á boðstólum, en einnig haldið í þær skemmtilegu hefðir sem hafa myndast í kringum Miðaldadagana.Merkið við þessar dagsetningar í dagbók yðar.
-
Miðaldadagar ganga vel
laugardagur 21.júl.12 19:09
Á annað þúsund manns komu á Miðaldadaga á Gásum í blíðskaparveðri í dag, laugardag. Þrátt fyrir mannfjöldann fundu flestir eitthvað til að una sér við. Börnin léku sér í miðaldaleikjum, sum með trésverðum eða æfðu sig í bogfimi. Unglingarnir voru við það að tapa sér í knattleik að fornum sið, enda afar spennandi.
Þeir sem eldri voru fengu sér hressingu og hlýddu á miðaldatónlist og dáðust að handverki. Einhverjir keyptu sér vaðmál til að sauma sér miðaldabúning en aðrir lærðu að hreinsa brennistein til að púðurgerðar.
Margt fleira er hægt að upplifa á Miðaldadögum, en þeir halda áfram á morgun, sunnudag, kl. 11-18.
-
Miðaldabátur sjósettur
miðvikudagur 18.júl.12 23:03
Í dag var sjósettur nýsmíðaður bátur sem er gerður eftir lagi skoskra eyjabáta frá miðöldum. Talið er að bátar með slíku lagi hafi verið notaðir hérlendis.Haraldur Ingi Haraldsson, bátasmiður, myndlistarmaður og áhugamaður um miðaldir hefur lagt nótt við nýtan dag til að klára bátinn fyrir Miðaldadagana. Á Miðaldadögunum verður báturinn búinn hrosshársreipum, sett í hann ballest og smíðað í hann járnaverk eins og má ætla að hafi verið í bátum þeirra tíma.
-
Stígagerð lokið
miðvikudagur 18.júl.12 21:43
Vaskur hópur sjálfboðaliða frá SEEDS hefur nú lokið við að leggja göngustíg að fornleifasvæðinu að Gásum. Með því verður aðgengi að svæðinu mun betra og opnast falleg og skemmtileg gönguleið.
Stígurinn liggur frá bílastæðinu að upplýsingaskiltunum sem komið var fyrir á sínum tíma, niður að kirkjustæðinu og síðan meðfram fornleifasvæðinu og suður eftir þar sem hann mætir Skipalónsstígnum. Þannig myndar hann hring sem er þægilegur göngutúr.
Hópurinn sem vann að stígagerðinni undir stjórn Jóhannesar Árnasonar kemur víða að, frá Grikklandi, Ítalíu, Lettlandi, Belgíu og Bandaríkjunum. Gásakaupstaður ses kann þeim og SEEDS samtökunum bestu þakkir fyrir.
Gásakaupstaður ses
Framkvæmdastjóri Miðaldadaga á Gásum er Skúli Gautason.
Leit
Heimsóknir
Samtals: 405363

