Flýtilyklar
samstarf
Gásaverkefnið
Samstarfsamningur um uppbyggingu

Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri Hörgárbyggðar, Þórgnýr Dýrfjörð menningarfulltrúi Akureyrarbæjar og Guðrún M. Kristinsdóttir, forstöðumaður Minjasafnsins undirrituðu samninginn
18. desember var undirritaður verkefnasamningur milli Hörgárbyggðar, Akureyrarbæjar og Minjasafnsins á Akureyri um uppbyggingu ferðamannastaðar á miðaldakaupstaðnum Gásum í Eyjafirði. Undirskriftin fór fram í Skötuveislu um borð í Húna II sem liggur við Torfunesbryggjuna á Akureyri.
Verkefnastjórn
Kristín Sóley Björnsdóttir er verkefnisstjóri Gásaverkefnisins, sem sér um kynningu og fjármögnun verkefnissins. Hún hefur einnig haft veg og vanda að skipulagningu viðburða á Gásum.
Kristín lauk B.A. námi í þýsku við HÍ árið 1996, B.S. námi í menningarlandafræði með áherslu á ferðamál árið 2001 og mastersprófi á sama sviði frá Viðskiptaháskólanum í Gautaborg árið 2002. Hún vann áður sem sérfræðingur hjá Ferðamálasetri Íslands þar sem megin áhersla hennar var á menningartengda ferðaþjónustu
Erlend tengsl Á síðustu árum hafa myndast tengsl við hliðstæðar stofnanir á Norðurlöndunum, sérstaklega við Middelaldercenteret í Danmörku. Nánar hér.
Gásakaupstaður ses
Framkvæmdastjóri Miðaldadaga á Gásum er Skúli Gautason.
Netfangið er skuli@gasir.is og símanúmer 896 8412.
Leit
Heimsóknir
Samtals: 385351

