Gásir

Gásir við Eyjafjörð

Flýtilyklar

Velkomin(n)

Gásir við Eyjafjörð eru einstakur staður 11 km norðan við Akureyri. Gásakaupstaður, verslunarstaður frá miðöldum eru friðlýstar fornleifar í umsjón Fornleifaverndar ríkisins.   Á staðnum má sjá einstakar rústir þessa forna kaupstaðar sem var við lýði allt frá 12.öld og jafnvel allt að því að verslun hófst á Akureyri á 16. öld. Hér var um sumarverslunarstað að ræða eins og tíðkaðist í þá daga.

Nýjustu fréttir

  • miðvikudagur 6.feb.13 13:57
    minjasafnid_gasir_061301

  • Miðaldadagar 2013

    miðvikudagur 10.okt.12 14:34

    Miðaldadagar verða haldnir á Gásum um miðjan júlí, nánar tiltekið 19. - 21. júlí.
    Ýmislegt nýstárlegt verður á boðstólum, en einnig haldið í þær skemmtilegu hefðir sem hafa myndast í kringum Miðaldadagana.

    Merkið við þessar dagsetningar í dagbók yðar. 


  • Miðaldadagar ganga vel

    laugardagur 21.júl.12 19:09

    Á annað þúsund manns komu á Miðaldadaga á Gásum í blíðskaparveðri í dag, laugardag. Þrátt fyrir mannfjöldann fundu flestir eitthvað til að una sér við. Börnin léku sér í miðaldaleikjum, sum með trésverðum eða æfðu sig í bogfimi. Unglingarnir voru við það að tapa sér í knattleik að fornum sið, enda afar spennandi. 

    Þeir sem eldri voru fengu sér hressingu og hlýddu á miðaldatónlist og dáðust að handverki. Einhverjir keyptu sér vaðmál til að sauma sér miðaldabúning en aðrir lærðu að hreinsa brennistein til að púðurgerðar.

    Margt fleira er hægt að upplifa á  Miðaldadögum, en þeir halda áfram á morgun, sunnudag, kl. 11-18.


  • Miðaldabátur sjósettur

    miðvikudagur 18.júl.12 23:03
    Haraldur Ingi undir árum
    Í dag var sjósettur nýsmíðaður bátur sem er gerður eftir lagi skoskra eyjabáta frá miðöldum. Talið er að bátar með slíku lagi hafi verið notaðir hérlendis.
    Haraldur Ingi Haraldsson, bátasmiður, myndlistarmaður og áhugamaður um miðaldir hefur lagt nótt við nýtan dag til að klára bátinn fyrir Miðaldadagana. Á Miðaldadögunum verður báturinn búinn hrosshársreipum, sett í hann ballest og smíðað í hann járnaverk eins og má ætla að hafi verið í bátum þeirra tíma. 


Gásakaupstaður ses

er sjálfseignarstofnun í eigu Akureyrarbæjar, Hörgársveitar, Dalvíkurbyggðar, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Svalbarðsstrandahrepps, Minjasafnsins á Akureyri, Handraðans - miðaldahópurinn og Gásafélagsins. 
Framkvæmdastjóri Miðaldadaga á Gásum er Skúli Gautason.

Mynd augnabliksins

tjaldverslun2.JPG

Heimsóknir

Í dag: 860
Samtals: 384460

Póstlistar


...

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf

Deildarval

  • islenska
  • english

Framsetning efnis